
Hugsum frá grunni
Við greinum staðreyndir frá ágiskunum, spyrjum áfram hvers vegna og byggjum skilning okkar frá grunni.
Við þróum skráningarlausn sem einfaldar umsýslu á tannlæknastofum og gefur fagfólki meiri tíma til að sinna sjúklingum.

Við þróum snjalla lausn fyrir nútíma tannlæknastofur. Hún styður teymið í daglegu starfi svo hver heimsókn gangi betur og hver sjúklingur fái meiri athygli.
Í dag útbýr Dentio drög að færslum í sjúkraskrá og sér um umsýsluna í kringum þær, jafnt á litlum stofum sem í stórum stofukeðjum. Talgreining og mállíkön breyta samtölum við sjúklinga í skipulögð drög sem þú ferð yfir og samþykkir.
Dentio er hannað fyrir fagfólk í tannheilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum og samræmist GDPR og gildandi landslögum um vernd sjúklingagagna. Við þróum lausnina í nánu samstarfi við tannlækna og stofur. Fólkið sem vinnur með hana mótar hvert vinnuferli.
Skráning er aðeins byrjunin. Við þróum hugbúnað fyrir tannheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar. Tæknin á að gefa fagfólki svigrúm til að líta upp frá skjánum og veita manneskjunni í stólnum óskipta athygli. Við viljum styrkja samband tannlæknis og sjúklings og fækka því sem stendur á milli þeirra. Þannig byggjum við framtíð tannlækninga með þér.

Við greinum staðreyndir frá ágiskunum, spyrjum áfram hvers vegna og byggjum skilning okkar frá grunni.

Við breytum metnaðarfullum hugmyndum í raunhæfar áætlanir og fylgjum þeim eftir þar til þær verða að veruleika.

Það er ekki nóg að lausnin virki. Við hlustum vel og vöndum hvert smáatriði þar til notkunin verður einföld og þægileg.

Við tökum ábyrgð á árangrinum, ryðjum hindrunum úr vegi og fylgjum verkefnum eftir þar til markmiðunum er náð.

Við spyrjum alltaf: „Höfum við rætt þetta áður? Hvað gerum við öðruvísi í þetta sinn?“ Við deilum því sem við lærum svo við endurtökum ekki mistök.

Við hjálpum hvert öðru, tölum af hreinskilni og tökum frumkvæði þegar þarf. Við skiptum um skoðun þegar gögnin gefa tilefni til.

Þrautseigja skiptir máli en má ekki standa framförum fyrir þrifum. Við endurmetum markmiðið og aðferðina og breytum um stefnu þegar betri leið býðst.
Norræn hýsing með lítið kolefnisspor
Netþjónar Dentio eru hýstir hjá Google Cloud í Svíþjóð og Finnlandi. Þar kemur um 95% raforkunnar frá orkugjöfum öðrum en jarðefnaeldsneyti. Við veljum hýsingu innan ESB með lítið kolefnisspor fyrir innviði okkar og sjúklingagögn.
Tannlæknar, verkfræðingar, hönnuðir og rekstrarfólk sem móta framtíð sjúkraskráningar í tannlækningum.
og fleiri...










Með reynslu frá







Við vinnum af metnaði og heilum hug. Ef gildin okkar höfða til þín viljum við gjarnan heyra frá þér.